Lára Björg Olla Gunnhildur Anna Hera Ester Steinunn Soffía Berglind

Bien Venue - Velkomin - Velkommen - Welcome

28.11.2006 14:58:18 / Hera

Long time no see!!!

Sælar skvísur

Ég hef ákveðið að rífa þessa síðu upp úr svaðinu og eymdinni sem hefur legið yfir henni sl. vikur. Nýtt útlit, nýtt blog og hver veit nema ég hendi inn nokkrum myndum á næstu dögum.
Alger óþarfi er að taka það fram að þið ætlið auðvitað að vera viðbjóðslega duglegar að blogga héðan í frá;)

En annars er orðið allt of langt síðan við höfum sést og ég er hálf farin að sakna ykkar...
Skemmtilegu jólaprófin sem við höfum náttúrulega allar hlakkað til síðan skólinn byrjaði eru að byrja og auðvitað allir sveittir ofan í þykkum skruddum þessa dagana en jafnvel mestu lestrarhestar þurfa að taka sér smá pásu...þannig að ég ætla að stinga upp á að við reynum að hittast aðeins áður en prófin byrja....how do you like Iceland?(a.k.a. hvernig líst ykkur á það?)
Látið í ykkur heyra elskurnar:D

P.s. Olla, Björg, Gunny, Soffía og Katrín: sorry hvað ég talaði lítið við ykkur þarnar um kvöldið þegar ég hitti ykkur...of lítið áfengi af minni hálfu og of mikið hjá samferðarfólki mínu:S

Kíb inn tuts mæ beibís

Kiss,kiss...
Hera


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 21:38:01 / steinunn

Takiði frá föstudaginn 3. nóvember

Hei ma beibes.... :lol:

þá er komið af fleiri fréttum beint frá ekvador!!!

Greyið Gretar!! já þið vissuð það kannski ekki en Gretar var rændur úti í ekvador á matsölustað!!! í töskunni hans var myndavélin hans með öllum myndunum sem hann hafði tekið :$ og öllum spænskuglósunum sem hann hafði gert í spænskuskólanum!! Hann var frekar reiður sem ég get alveg trúað!!! :$ svo gengur víst ekkert að finna handa honum nýja fjölskyldu þannig hann situr uppi með þessa rugluðu kellingu sem er aldrei heima og öskraði á hann um helgina!! Ljóta drusla!!!!:klikk:

heheh er smá æst í þessa kalla 8):|

já en svona til þess að senda aðeins betri fréttir þá hittust ester og grétar um helgina og það var víst bara alveg æðislegt hjá þeim saman!!!

jæja 267 dagar í að þau koma heim 52 dagar búnir :S úfff það er langt eftir..... en ég skal koma með fréttir reglulega af þeim.... þið sem nennið ekki lengur að hlusta á mig baula farið inná www.blog.central.is/esterv þar bloggar svalasta gellan af öllum! :haha:

Takið frá 3.nóvember gellur!!

heheh jæja þá er litla leikritið í Versló frumsýnt og ég vil sjá ykkur allar þar eða þá allavega í partýinu eftirá ;) heheh ég er nú kannski ekkert voða mikið inná :s en það væri gaman að sjá sem flestar ;)

vá ef þetta var ekki leiðinlegasta blogg allra tíma þá veit ég ekki hvað!! mér fannst bara eiginlega að einhver yrði að taka af skarið áður en þessi síða deyr!!8|

kv. stonie leiðinlega


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 12:27:03 / Olla

AMMÆLI :D

Jæja litlu bollur þá er loksins komið að því.. Berglind er orðin 18 ára lítil snót. Hún er semsagt orðin sjálfráða (velkomin í hópinn ;) ) og ætti að vera buin að hafa bílpróf í ár ennn vonum bara að það komi fyrir 19 ára afmælisdaginn :) en alla vegna til hamingju begga mín og vonandi muntu hafa æðislegan dag :D

bara taka það fram að begga vinnur sem hjúkka um helgar og þetta eru vinnufötin hennar ;)

og herna er sæta stelpan okkar :D

TIL HAMINGJU AFTUR SÆTA SÆTA :*

KVEÐJA KVENSURNAR ÞÍNAR :D

p.s Gogo dýrið á afmæli á morgun :) jeiii


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 14:22:04 / steinunn

Fréttir

 

Fréttir af Esta Besta Ecvadorfara

Hæ kæru kvensurnar mínar!!! mamma esterar leit til mín í gær með smá fréttir af mongólitanum okkar og mig langaði bara að deila þeim með ykkur ;)

 

  • eins og margir gerðu sér trú um var ester send til ecvador til að læra spænsku
  • svo lítur út fyrir að ester muni koma heim altalandi tvö tungumál
  • grínlaust eins og ester sjálf myndi segja!!!
  • fjölskyldan talar ekki spænsku heldur eikkað indjánamál!! toppiði það
  • á heimilinu verða mikið af börnum..... 3 ára barn sem foreldrar hennar ættleiddu, barn sem systir hennar ættleiddi og hin systir hennar með eitt á leiðinni í mallanum... guð sé lof að ester vann á leikskóla í sumar!!
  • og þegar ég segji mamma og systir þá er ég að meina úti... vá þetta er að verða flókið hjá mér
  • alvöru mamma hennar (ég kalla hana alvöru bara til að fyrirbyggja allan misskilning) sagði að ef hún skildi dóttur sína rétt er ester á leið í einhvern tónlistarmenntaskóla...
  • hennar vegna vildi ég að hún hefði ekki skellt kæruleysinu á píanóæfingar í sumar vegna þess hve líklegt er að hún þurfti að spila á píanóið við og við
  • eins og ester útskýrði vel fyrir okkur er faðir hennar "a buisnessman"
  • já og hva haldiði... ester var greinilega ekki fenginn á heimilið til að sitja á rassinum og fitna eins og hún hélt fram
  • foreldrar hennar eru með vefnaðarverksmiðju inná heimilinu

við getum í rauninni tekið útdrátt úr þessarri frétt og sagt:

ester :

  • kemur heim talandi 2 tungumál.... spænsku og indjánamál sem hún hefur lítil not fyrir því enginn skilur hana!!
  • barnvön og jafnvel búin að ættleiða einn krakka sjálf
  • tágrönn og biksvört eins og venjulega
  • spilandi indjána píanómúsik eins og indjánagaurarnir sem maður sér alltaf spila út á götum í útlöndum (svona á flautur og læti)
  •  og að lokum saumandi indjánaföt eins og henni sé borgað fyrir það!!

 

mig langar samt að taka það fram að lokum að þessar upplýsingar er allar komnar frá móður esterar Jónu..... getur alveg verið að ég hafi misskilið eitthvað en höfum þetta allavega svona í bili þangað til Pólý(ester) bloggar og leiðréttir allan misskilning!!

ahh smá fréttir af mér með: fór á eikkað stuðmannaball á laugardaginn og smitaðist af fuglaflensu þar... fólk er vinsamlegast beðið að hafa ekki samband við mig á meðan!! (sérstaklega ekki eftir 11 á kvöldin).. fuglaflensa einkennist af: djúpri nefmæltri rödd og eiturhósta sem er sagður geta borist í gegnum síma!!!

 

kv. dr. Stone


» 13 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 13:11:15 / Hera

Yo niggah!!!


Berglind mín!

Hentu inn myndunum frá laugardeginum:D

Venlige hilsen,

Hera

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 13:59:39 / Berglind

HÍHÓ

Jæja!

Vegna fjölda áskoranna hef ég, Berglind, skellt inn myndum frá partýinu hjá Eddu 29. júlí. Hefði gert þetta miklu fyrr, og biðst þar af leiðandi afsökunar, en ég var úti í London. Á leiðinni eru nokkrar myndir þaðan og af SigurRósar tónleikunum sem voru ÆÐISLEGIR! Tók líka nokkur myndbönd sem ég er að hugsa um að deila með ykkur:)

mannhafið

Krakkarnir:)

 

Annars er mest lítið að frétta fyrir utan að þessi ferð mín var stórgóð. Maður er líka feginn að hafa náð heim áður en allar örtraðirnar fóru að byrja þarna í tengslum við hryðjuverkin sem við höfum heyrt um í fréttum.

Ég vildi líka minna fólk á að Ester og Gretar eru að fara út eftir tæpar tvær vikur og farið þið að verða þau síðustu að sjá þau áður en þau ferðast til miðbaugs í ár!:^)8|   Annars hef ég samband við ykkur sem ég hef talað við í sambandi við "þið vitið;)", sem minnir mig a það að ég þarf að tala við ykkur stelpur mínar!

Stelpur! Er það ekki hittingur í kvöld? Mér heyrist á fólki að það sé til í smá stuð í kvöld...verðum í bandi:!::haha:

ps. allir að tékka á þessu... heitasta lagið í dag! http://video.google.com/videoplay?docid=6880888700625496919

kv. Berglind


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 14:21:21 / Hera

Bleeeesaðar!

-= Sælar kvensur =-

Nú er ég búin að vera heima á Fróni í 2 vikur og finnst orðið timabært að fara að hitta ykkur. Hvað segið þið um að reyna að djamma aðeins saman annað kvöld?

Vona að þið séuð brjálæðislega mikið til í þetta og að þið hafið e-r staðsetningarhugmyndir:D

Í millitíðinni ætla ég að setja inn nokkrar myndir frá Frakklandi:

Ég og Guðrún að bíða eftir lest í Lyon

Komin til Annecy

Sæta litla íbúðin okkar

Guðrún og bestu vinir okkar í Annecy, Dan og John

Við fyrir utan Louvre í París

Dan, John, Ellie og Guðrún að borða besta kebab í heimi

Og ein fylleríismynd í lokin;)

 

Ekki meira í bili...hendi restinni kannski inn við tækifæri.

Látið heyra í ykkur með annað kvöld;*

´A demain...

Hera


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 14:48:25 / Anna

obbobbboyoboyoboy.....eyjar, eyjar, eyjar......

"Að skemmta sér á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum"

Núna eru sætu tullurnar mínar að chilla út í eyjum...Olla skelli á manni einu stykki símtali i gær....þá voru þær búnar að planta sér í Herjólf….ekki lagðar af stað en samt komnar í mjööööööög góðan gír;) Olla vildi kenna sjóveikistöflunum um það að hún væri strax komin í glas en ég veit betur ;)

Sko heyrði ég í sætu kjellunni í morgun kl. 11 og var bara whaaaaaat er stúlkan vöknuð!!! En þá var hún einmitt stödd í íþróttarhúsinu í eyjum því það var ekki hægt að tjalda í dalnum vegna slæms veðurs (held maður skrifi þetta svona :S) Og það er spáð enþá verra í kvöld:S ég er nú bara soldið hrædd um elskurnar mínar því vonadi fjúka þær bara ekki af eyjunni…já við skulum vona það….maður veit samt aldrei….djók það gerist ekkert…7,9,13 :P

Þessi sæta....

oooooog þessi sæta...

party hjá guðna056.JPG

Oooog þessar sætu píur!

En hey mér finnst þig ógó sætar og ég ætla að taka þroskuðu týpuna á þetta og segja skemmtið ykkur ógó vel og hafið geðveikt gaman þótt ég sé mjöööög abbó að þurfa að vera heima að læra yfir helgina á meðan þið erum að skemmta ykkur á þjóðhátíð

En ætlaði ekkert að hafa þetta mikið lengra, langaði bara að segja hvað ég elska þessar gellur mikið og hlakka til að sjá þær heilar á höldnu aftur :D

Kv. Anna (ekki að skemmta sér á þjóðhátíð í Vestmanneyjum)

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 15:48:58 / Anna

noooohhh það er bara sól úti...

Ég er ekki frá því að það er bara komin tími á eitt fokkings blogg á þessari fokkings síðu….váááááá hvað ég er hörð!!! En þetta var samt bara djók…flipp…flipp í mér :P

En jámm það hefur samt alveg voðalega lítið drifið á daga mina annað en lærdómur og vinna:S frekar leiðó skomm….en þessu fer nú að ljúka….only week to go:D:D:D þá frííííííí shibbí:D eins gott að ég nái þessum bévítans prófum bara!!!

En talandi um NOTEBOOK…reyndar vorum við ekki að tala um Notebook en við skulum alveg gera það:P þá var ég að horfa á hana á sunnudaginn síðasta, var að horfa á hana í svona 6. skipti og er alltaf jafngaman að horfa á þessa fallegu mynd… og alltaf fer maður jafn mikið að gráta…því hún er svo falleg!!! Djös kelling er ég....greinilega ekki eins hörð og ég þykist vera:S en þeir sem hafa ekki séð þessa frábæru mynd verða bara að sjá hana….líka strákar!!!:P

 

 Sjáiði bara hvað þau eru sæææææææææt!!! :D

 

Langar að sýna eitt ógó fyndið og satt….mana ykkur til að lesa eftirfarandi…double dare á ykkur!!!!

“Ríkisstarfsmenn eru margir hverjir óánægðir með nýtt netfangakerfi hjá ríkinu. Það er víst þannig að notaðir eru 9 stafir, svo att-merkið og nafn viðeigandi stofnunar. Stafirnir 9 eru þrír fyrstu úr fornafni starfsmanns, svo þrír fyrstu úr föðurnafni/eftirnafni og svo þrír fyrstu stafirnir úr starfsheiti.

Rúnar Karlsson, sérfræðingur, er víst hættur.”

Eeeeen ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili....ætla að halda áfram að vinna:)

Kv. Anna;)

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 12:03:40 / Kvensurnar

STUÐ?

Pjöllur?!

Er það djamm um helgina eða rólegt?

 

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 15:57:30 / Lára

yoo babes!!

Mér leiðist svo í vinnunni...

þannig á ákvað bara að skella inn myndum frá áramótunum...já ég veit að thad er dáldið langt síðan..en ég fýlaða:)

Stelpur thad er svo sjúkt stutt í skólann að thad er ekki einu sinni fyndið...mér finnst við ekkert búnar að gera í sumar...samt einhvernveginn erum við búnar að gera fullt:$

Hvað ætlði annars að gera um helgina? Er thad ekki bara eitthvað svona semi rólegt eða?

Ohh!! ég öfunda mömmu mína og pabba svo..thau eru í svo miklar snilldar vinnu að thad er ekki fyndið..thau skelltu sér bara til London bara í sólarhring bara svona fara út að borða og aðeins að slappa af!! Marr er alveg að spá í að verða bara flugmaður þegar marr er orðin stór sko...ég væri ekkert á móti því að fá borgað fyrir að fara til útlanda og versla og eitthvað svona skemmtilegheit...pæling sko

En já eitt í viðbót ég var að horfa á OC í gær..lokaþátt og nenniði að hringja í mig thegar thið eruð búnar að sjá thetta...ég verð að tjá mig um thetta!!! hehe

Hef thetta ekki lengra í bili :D:D

peace out my niggahs8)

Laurie


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 08:39:39 / Hera

a leidinni heim

 

Salut

Nu styttist i lok tessara ferdar en eg kem heim nuna a fostudaginn og mig langar ykt mikid ad hitta ykkur sem fyrst;)

Um sidustu helgi for eg til Parisar en akkurat ta helgi var hitabylgja tar svo eg fekk ad upplifa Paris i 42 stiga hita. Best i heimi. Vid skodudum Louvre, Pompidou, Sigurbogann og Eiffelturninn svo eitthvad se nefnt og endudum ferdina a ad kaupa okkur sitthvort parid af Fendi skom. Ekta. A 50% afslaetti.

En nuna fara dagarnir adallega i tad ad reyna ad finna lausn a tvi hvernig eg aetla ad koma ollu drasluni minu heim tar sem ad eg var tegar med yfirvigt a leidinni ut:P En a milli tess er eg ad laera fyrir lokaprofid sem er a morgun og ljuka vid fyrirlesturinn minn sem eg a ad flytja eftir akkurat 20 min!

Hef tetta ekki lengra ad sinni og hugsanlega verdur naesta blog fra Islandi. Bid ad heilsa ykkur ollum saetu kvensurnar minar og se ykkur vonandi a laugardaginn;)

Passe une bonne journee

Hera


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 15:04:35 / Kvensurnar

The weekend

Takk fyrir síðast sæta fólk!

Ætlaði að blogga voða flott en það datt út! Ég geri það bara þegar ég er búin að æfa mig:haha: 

Það eru komnir tveir skammtar frá laugardeginum þar sem við vorum hjá Katrínu og einn skammtur í viðbót frá grillinu hans Rögga. Fengum lánaðar myndir frá honum .. Takk Röggi minn :*

Fullt af fleiri myndum á leiðinni:haha:

 Ég er farin að æfa mig;)

Njótið myndanna
Ítarlegra blogg á leiðinni;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 18:37:17 / Berglind

Nýtt & Gamalt!

!!Fullt af nýjum myndum!!

  • Partý hjá Guðna & Pésa síðasta föstudag

  • Chillpartý hjá Pésa & Grillveisla hjá Rögga síðasta laugardag

  • Gamlar myndir frá árshátíð og grímuballi MR

  • Matarboð hjá Berglindi í desember

  • Nokkrar myndir frá því hjá Önnu (gamlar)

  • Helgi í febrúar hjá Berglindi (fös&lau)

Undir * Nýjustu myndirnar * neðst!

-= More & more to come =-

(Tek nú ekki allan heiðurinn sjálf, þetta eru myndir frá okkur kvensunum og plús)

Kv. Saltarinn


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 12:36:09 / Anna

piktjörs...

Myndirnar komnar frá helginni 14-15 júlí!!!

 

 

Svarti hélt smá party á föstudeginum…

party hjá guðna054.JPG

 

....Sem ég því miður komst ekki í því ég var í ammæli hjá Nönnu sætu ;) en svo forum við stúlkurnar í party til Pétur Kjartans sem var bara líka þetta klassapartý…alveg dúndur :D

En héddna er slóðin að myndunum á föstudeginum frá partýinu hjá Guðna og Pésa:D

 

http://www.pbase.com/party_gudna

 

Gaman að segja frá því að í partýið hjá Pésa mætti gamall kall örugglega um 60 ára...sem var bara mættur og byrjaður að dansa við allar gellurnar þanna inni...gamli swingerinn eins og strákarnir kusu að kalla hann...

 

Eyjó var allavega að fíla hann...það er greinilegt :P

http://www.pbase.com/party_gudna

en svo á föstudeginum var svona smá chill party hjá Pétri aftur og hér eru einhverjar myndir frá því…

 http://www.blog.central.is/skrilpiurnar?page=viewPage&id=948237

 

En takk fyrir skemmtilega helgi stúlkur mínar….núna verður marr aðeins að fara að slaka á í djamminu….próf nálgast og sonna :S En bless í bili...Anna :P


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan